Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti

Nýr rammasamningur um viðhaldsþjónustu

Viðhaldsverk ríkisins á fasteignum á höfuðborgarsæðinu - Þjónusta verktaka í iðnaði - Nýr rammasamningur

25.8.2010

Nýr rammasamningur um viðhaldsþjónustu tók gildi 1. september 2010 og gildir til eins árs með möguleika á að framlengja tvisvar sinnum til eins árs í senn.

Samið var um þjónustu í eftirfarandi iðngreinum:

Blikksmiðir - Málarar - Málmiðnaðaramenn (aðrir en blikksmiðir) - Múrarar Pípulagningamenn - Rafiðnaðarmenn - Trésmiðir og Aðalverktaka.

Umfang verkefna er flokkað eftir því hversu umfangsmikil verkefnin eru:

Flokkur 1 – eru einstök verk allt að 10 milljónum.

Flokkur 2 – eru einstök verk á bilinu 10 til 50 milljónir.

Flokkur 3 – eru einstök verk yfir 50 milljónir.

Þar sem fjöldi bjóðenda er mikill í þessum samningum viljum við biðja kaupendur að kynna sér við hverja var samið í hverjum þjónustuflokki í meðfylgjandi Excelskjali með því að smella á hlekkinn.

Kaupendur geta kynnt sér nánar um boðin verð í hverjum flokki á rammavefnum undir flokki RK 14.30.

Verkefnisstjóri samnings hjá Ríkiskaupum er Gísli Þ. Gíslason: gisli@rikiskaup.is




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica