Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. nr. 84/2007 um opinber innkaup
Ríkiskaup boða til kynningarfundar 2. september
Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. nr. 84/2007 um opinber innkaup
Hjá fjármálaráðuneytinu er í undirbúningi gerð frumvarps til breytinga á lögum um opinber innkaup nr. 84/2007 sem einkum varðar kærumálsmeðferð. Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/66/EB þar sem kveðið er á um meginreglur er skylda ríki til að koma á fót skilvirkri og skjótri kærumálsmeðferð á sviði opinberra innkaupa, tryggja jafnræði o.fl.
Helstu breytingar og nýmæli sem eru ráðgerð eru eftirfarandi:
Óvirkni samninga. Það mat sem tilskipunin leyfir um hvort beitt er óvirkni og/eða öðrum viðurlögum er eftirlátið kærunefnd útboðsmála. Úrskurður um óvirkni samninga hefur þau áhrif að réttindi og skyldur samkvæmt aðalefni samnings falla niður frá upphafi.
Frestur vegna um óvirkni verður 30 dagar og verði jafnframt hinn almenni kærufrestur í stað fjögurra vikna, en að öðru leyti verði almenna reglan óbreytt. Fylgt er þeirri stefnu að fela kærunefnd mat á því hvernig öðrum viðurlögum er hagað, þ.e. hvort er beitt stjórnvaldssektum og/eða styttingu samnings.
Einnig er kveðið á um sjálfkrafa stöðvun samningagerðar eftir að kæra hefur borist.
Ríkiskaup, í samvinnu við fjármálaráðuneytið, boða til hádegisverðarfundar 2. september á Grand hótel þar sem Skúli Magnússon, höfundur frumvarpsins, mun kynna helstu atriði þess.
DAGSKRÁ: (smelltu til að prenta út PDF)
12.00 Hádegisverður
12.30 Fundur settur- Fundarstjóri er Guðmundur I. Guðmundsson, yfirlögfræðingur Ríkiskaupa
12.40 Eftirlit og fullnusta vegna brota gegn reglum um opinber innkaup – Skúli Magnússon kynnir frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup
13.20 Umræður og fyrirspurnir
Verð pr. þátttakanda er kr. 3.000,-
Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hið fyrsta í netfang: skraning@rikiskaup.is.
Gefa þarf upp nafn þátttakenda og nafn og kennitölu greiðanda
Nánari upplýsingar um frumvarpið má sjá vef fjármálaráðuneytisins: http://www.fjarmalaraduneyti.is/verkefni/umsagnarferli
