N1 segir upp rammasamningi um eldsneyti
Uppsögnin tekur gildi 1. ágúst 2010
Rammasamningur um eldsneyti og olíur fyrir okutæki og vélar ríkisins tekur breytingum á næstunni.
N1 hf. hefur sagt upp núverandi samningi og tekur uppsögnin gildi þann 1. ágúst 2010.
Olíuverslun Íslands hf. sem einnig var samið við í þessu sama útboði hyggst áfram bjóða notendum rammasamninga umsamin kjör út samningstímann.
Ríkiskaup fara þess á leit við alla notendur þessa samnings að færa viðskipti sín yfir til Olíuverslunar Íslands hf. þar sem þess er kostur frá og með 1. ágúst 2010.
Skyldu til að virða rammasamninga er lýst í greinargerð með lagafrumvarpi sem varð að lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup en þar kemur fram vegna 34. greinar sem fjallar um rammasamninga:
"Í samræmi við meginreglur íslensks samningaréttar hefur verið litið svo á að aðilar rammasamnings ættu ekki sjálfdæmi um hvort þeir keyptu inn samkvæmt rammasamningi eða skiptu við aðra aðila. Þeir opinberu aðilar sem á annað borð eru aðilar að rammasamningi eða kerfi fleiri rammasamninga verða samkvæmt þessu að kaupa inn á grundvelli rammasamnings og geta t.d. ekki farið í sjálfstætt útboð vegna vöru eða þjónustu sem fellur undir rammasamning. Af þessum sökum verður seint lögð of mikil áhersla á það að það sé skýrt til hvaða vöru eða þjónustu rammasamningur tekur"
Olíuverslunin rekur þjónustustöðvar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess ásamt 27 þjónustustöðvum víðsvegar um landið. Allar nánari upplýsingar um sölustaði Olíuverslunar Íslands hf. má finna inni á heimasíðu þeirra www.olis.is
Tengiliður samnings hjá Olís er Kristinn Leifson - Sími: 515-1252
Tengiliður samnings hjá Ríkiskaupum er Magnús G. Sigurgeirsson - Sími 530-1400
