Afsláttur af gistingu og veitingum
Ríkiskaup minna á rammasamning um gistingu og veitingar innanlands
Ertu með þreytta og svanga ferðalanga á þínum snærum? Kynntu þér nýjan rammasamning sem tryggir opinberum stofnunum afslátt og sérkjör á gistingu og veitingum innanlands. Samningurinn kemur til móts við nýlegar breytingar á reglum fjármálaráðuneytisins um greiðslur á ferðakostnaði innanlands.
ATH - Samningurinn tryggir stofnunum umtalsverðan afslátt af gistingu og veitingum víða um land en þess má geta að greiðslur dagpeninga til ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands breyttust frá og með 1. október 2011.
Meðal samningsaðila um gistingu má nefna Fosshótelin út um land, Hótel Sögu, Hótel Ísland og Reykjavík hótel auk fjölda annarra. Veitingastaðirnir eru heldur ekki af verra taginu og má þar nefna veitingastaðinn Silfur og veitingahúsið Perluna.
Kaupendur geta kynnt sér kjörin og við hverja var samið á rammavefnum á vef Ríkiskaupa.
Þeir sem ekki hafa notendanafn og aðgangsorð nú þegar geta sótt um það hér: birna@rikiskaup.is
Til minnis:
· Kynntu þér hverjir eru aðilar að rammasamningnum
· Hvaða kjör eru þeir að bjóða?
· Mundu að taka fram að þú sért aðili að rammasamningi við pöntun
Listi yfir seljendur í samningnum
