Viðurkenning veitt í ritgerðasamkeppni Ríkiskaupa
Nína Björk Geirsdóttir hlaut viðurkenninguna
Vorbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fór fram í Laugardalshöll, laugardaginn 12. júní sl.
Í sérstakri móttöku vegna útskriftar laganema var veitt viðurkenning í ritgerðasamkeppni Ríkiskaupa sem haldin var í samvinnu við lagadeild, viðskiptafræðideild, hagfræðideild og stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Markmiðið með ritgerðasamkeppninni er að stuðla að aukinni hagkvæmni opinberra innkaupa með því að efla þekkingu og bæta vinnubrögð á því sviði, bæði hjá ríki og sveitarfélögum og átti efni ritgerðanna að tengjast opinberum innkaupum hérlendis og hafa möguleika á að stuðla að framförum á því sviði.
Nína Björk Geirsdóttir hlaut viðurkenninguna fyrir ritgerð sína; "Mismunandi aðferðir við opinber innkaup samkvæmt V. kafla laga nr. 84/2007 um opinber innkaup".
Umsjónarkennari ritgerðar var Jóhannes Karl Sveinsson hrl. og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands.
Það var Guðmundur I. Guðmundsson, yfirlögfræðingur hjá Ríkiskaupum sem veitti Nínu verðlaunin.
Smelltu á myndirnar til að stækka þær.



