Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð á Eskifirði liggur nú fyrir.
Alls bárust 36 tillögur í samkeppnina og hlutu þrjár tillögur verðlaun en þær tillögur svöruðu að mati dómnefndar best þeim væntingum sem lýst er í samkeppnislýsingunni. Þá fengu sex tillögur viðurkenningu með peningaverðlaunum og þrjár fengu viðurkenningu án peningaverðlauna.
1. verðlaun fékk tillaga nr. 3 - Höfundar Einrúm arkitektar – Anders Møller Nielsen, Kristín Brynja Gunnarsdóttir, Michael Blikdal Erichsen , Steffan Iwersen og Þór Tulinius. Verðlaunafjárhæð kr. 3.500.000,-
2. verðlaun fékk tillaga nr. 23 – Studio Strik – Sigríður Ólafsdóttir og Hulda Þ. Aðalsteinsdóttir. Verðlaunafjárhæð kr. 2.500.000,-
3. verðlaun fékk tillaga nr. 30 – Arkitektar Hjördís & Dennis ehf – Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson. Verðlaunafjárhæð kr. 1.000.000,-
Þá fengu eftirtaldar tillögur viðurkenningu með peningaverðlaunum, tillögur nr. 9, 2, 18, 26, 34 og 35.
Tillögur sem hlutu viðurkenningu án peningaverðlauna eru tillögur nr. 8, 10 og 17.
Dómnefnd:
Tilnefndir af verkkaupa: Ásmundur Ásmundsson, verkfræðingur, formaður dómnefndar, Vilborg Ingólfsdóttir, sviðsstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, Jóhann E. Benediktsson, mannvirkjastjóri Fjarðabyggðar.
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands: Einar Ólafsson, arkitekt FAÍ og Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ.
Verkefnastjóri og ritari dómnefndar:
Bergljót S. Einarsdóttir, verkefnastjóri/arkitekt FAÍ, Framkvæmdasýslu ríkisins.
Trúnaðar- og umsjónarmaður:
Gísli Þór Gíslason, verkefnastjóri, Ríkiskaupum.
Dómnefndarálit er aðgengilegt á heimssíðu Framkvæmdasýslu ríkisins http://fsr.is/
