Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti

Ný rammasamningsútboð hjá Ríkiskaupum

Fjögur almenn rammasamningsútboð eru í auglýsingu á vef Ríkiskaupa

25.5.2010

Fjögur almenn rammasamningsútboð eru í auglýsingu hjá Ríkiskaupum. Um er að ræða UT hýsingu, UT rekstrarvörur, þjónustu verktaka í iðnaði og almenna lögfræðiráðgjöf.

Upplýsingatækniútboðin tvö eru ný sérútboð en hýsingarþjónustan og rekstrarvaran var áður hluti af upplýsingatæknisamningnum um tölvubúnað og þjónustu. Miklar breytingar á markaði og verðhækkanir hafa orðið í þessum tveimur hlutum og því ákveðið að bjóða þá út sérstaklega til að ná fram betri kjörum fyrir kaupendur.

Rammasamningsútboð á þjónustu verktaka í iðnaði nær til viðhaldsverkefna á vegum ríkisins. Þessi þjónusta hefur ekki áður verið boðin út í rammasamningi og því spennandi að fylgjast með hvernig til tekst. Ríkiskaup hafa kynnt útboðið nú þegar fyrir Félagi pípulagningameistara, Málarameistarafélaginu, Meistarafélagi húsasmiða, Múrarameistarafélagi Reykjavíkur, Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði og Samtökum iðnaðarins. Til stendur að halda kynningarfundi/námskeið með félögunum til að kynna útboðið og auðvelda þátttakendum að gera sín tilboð eftir settum reglum og munu félögin senda út tilkynningar á sína félagsmenn auk þess sem fundirnir verða kynntir á vef Ríkiskaupa.

Rammasamningsútboð á almennri lögfræðiþjónustu er endurútboð á ársgömlum rammasamningi sem ekki hefur gengið sem skyldi og er útboðið núna tilraun til að ná betur utan um þjónustuframboðið með það að markmiði að gera kaupin gegnsærri og auka jafnræði þeirra sem selja lögfræðiþjónustu til ríkisstofnana.

Ríkiskaup fara þess á leit við kaupendur að þeir hvetji sína þjónustuaðila til þátttöku þar sem þeir aðilar sem ekki taka þátt í þessum rammasamningsútboðum verða ekki gjaldgengir í viðhaldsverkefni á vegum hins opinbera né sem þjónustuaðilar í lögfræðiþjónustu eða UT hýsingu.

Útboðin hafa verið auglýst í Morgunblaðinu og eru útboðsauglýsingar á forsíðu Ríkiskaupavefsins www.rikiskaup.is. Þar er einnig hægt að sækja útboðslýsingar og önnur nauðsynleg gögn fyrir bjóðendur.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica