Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti

Ríkiskaup bjóða út kaup á innrennslislyfjum fyrir um 100 milljónir króna á ári

6.5.2010

Ellefu stærstu heilbrigðisstofnanir landsins áætla að kaupa innrennslislyf fyrir um 100 milljónir króna árlega. Ríkiskaup bjóða kaupin út fyrir hönd heilbrigðisstofnananna.

Fimmtudaginn 29. apríl var útboðið kynnt í húsakynnum Ríkiskaupa. Auk auk lyfjainnflytjenda og seljenda sátu fundinn aðilar sem hafa verið að skoða kosti þess að framleiða lyfin hérlendis.

Á fundinum kynnti Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar regluverk og verkferli við sölu og framleiðslu á innrennslislyfjum. Þá fjallaði Haraldur Briem sóttvarnarlæknir um nauðsyn og vörslu neyðarbirgða innrennslislyfja í landinu.

Ríkiskaup fóru yfir efni útboðsins og útboðsferli.

Auk framangreindra sátu fulltrúar Landspítalans fyrir svörum. Fjörugar umræður og skoðanaskipti voru á fundinum sem var í alla staði hinn gagnlegasti að mati fundarmanna.

Að fenginni þessari góðu reynslu fyrirhuga Ríkiskaup að kynna öll stærri útboð á svipaðan hátt.

Hér fyrir neðan má sjá kynningar Rannveigar Gunnarsdóttur og Ríkiskaupa:

Kynning Rannveigar      Kynning Ríkiskaupa

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica