Niðurstaða hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Síðastliðinn föstudag fór fram verðlaunaafhending í Hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.
Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ liggur fyrir.
Dómnefnd var skipuð fimm fulltrúum, tilnefndir af verkkaupa voru formaður dómnefndar, Þráinn Sigurðsson, sérfræðingur mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Jóhanna Björg Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar og Ólafur Sigurðsson, sérfræðingur mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands voru Kristín Brynja Gunnarsdóttir, arkitekt FAÍ og Sigurður Einarsson, arkitekt FAÍ. Ritari dómnefndar var Bergljót S. Einarsdóttir, verkefnisstjóri/arkitekt FAÍ Framkvæmdasýslu ríkisins og trúnaðar- og umsjónarmaður samkeppninnar var Gísli Þór Gíslason, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum.
Verðlaunaafhending fór fram í Hlégarði í Mosfellsbæ í dag, föstudaginn 16. apríl 2010. Viðstödd voru Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í Mosfellsbæ, svo og aðrir aðilar samkeppninnar og boðsgestir. Þráinn Sigurðsson, formaður dómnefndar, kynnti hönnunarsamkeppnina og niðurstöður dómnefndar.
Fyrstu verðlaun hlaut tillaga architecture.cells, höfundar Aðalheiður Atladóttir, Falk Krüger og Filip Nosek. Ráðgjöf Árni Þórólfsson, arkitekt FAÍ (Félagi í Arkitektafélagi Íslands).
Önnur verðlaun fengu KRADS ARKITEKTÚR, Kristján Örn Kjartansson arkitekt FAÍ, Kristján Eggertsson arkitekt FAÍ, Mads Bay Møller arkitekt MAA (Medlem af Akademisk Arkitektforening) og Kristoffer Juhl Beilman arkitekt MAA, og arkitektanemarnir Bjarni Þorsteinsson, Vilborg Guðjónsdóttir og Pétur Blöndal Magnason. Sérlegir ráðgjafar voru Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt FAÍ og Kjartan Rafnsson byggingatæknifræðingur.
Þriðju verðlaun Guðrún Ingvarsdóttir arkitekt FAÍ hjá Arkþingi ehf., Helgi Mar Hallgrímsson arkitekt FAÍ. Lóðarhönnun Inga Rut Gylfadóttir og Björk Guðmundsdóttir, landslagsarkitektar FÍLA (í Félagi íslenskra landslagsarkitekta) hjá Forma ehf.
Verðlaunafé fyrir 1. verðlaun var 4,0 m.kr. (milljónir króna), fyrir 2. verðlaun 3,0 m.kr. og fyrir 3. verðlaun 1,0 m.kr. og auk þess tvær innkeyptar tvær tillögur 0,5 m.kr. hvor.
Tillögur í hönnunarsamkeppninni verða til sýnis fyrir almenning á Torginu í Kjarna, Þverholti 2 í miðbæ Mosfellsbæjar og hefst þriðjudaginn 20. apríl 2010. Félagar í Arkitektafélagi Íslands halda á sama stað rýnifund/ gegnumgang með fulltrúum dómnefndar miðvikudaginn 21. apríl klukkan 17.00 á sama stað.
Sjá frétt á vef Framkvæmdasýslu ríkisins
