Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Kronur

Viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa hafa verið uppfærðar

22.3.2010

Viðmiðunarfjárhæðir vegna útboðsskyldra innkaupa innanlands og opinberra innkaupa á EES hafa verið uppfærðar á vef Ríkiskaupa skv. auglýsingum frá fjármálaráðuneytinu.

Í auglýsingunni um útboðsskyld innkaup opinberra aðila innanlands segir:

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 20. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, skulu viðmiðunarfjárhæðir fyrir útboðsskyld kaup á vörum, þjónustu og verkum, breytast og verða sem hér segir:

Kaup á vörum: 6.200.000.- ISK án vsk.
Kaup á þjónustu og verkum: 12.400.000,- ISK án vsk.

Breytingin tekur gildi 1. apríl 2010

Í reglugerð um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á EES segir:

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar: 16.750.000,- ISk án vsk.

Þjónustusamningar: 16.750.000,- ISk án vsk.

Verksamningar: 649.230.000,- ISk án vsk.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar: 25.862.000,- ISk án vsk.

Þjónustusamningar: 25.862.000, ISk án vsk.

Verksamningar:  649.230.000, ISk án vsk.

Breytt reglugerð tók gildi 17. mars 2010.

Sjá nánar á vef Ríkiskaupa

og í stjórnartíðindum:

Auglýsing nr 230/2010 um útboðsskyld innkaup

Auglýsing nr. 299/2010 um opinber inkaup á EES

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica