Nýir rammasamningar
Kynnið ykkur nýja rammasamninga á rammavefnum
Rammasamningur um rekstraráðgjöf tók gildi 1. febrúar sl. og var samið við 38 aðila í 4 grunnflokkum:
1. Stjórnun og stefnumótun
2. Rekstrarráðgjöf um aðferðir, ferla, breytingar og uppbyggingu
3. Ráðgjöf um starfsmannastjórnun og símenntun/endurmenntun
4. Viðskipta og stjórnunarráðgjöf
Þá var einnig samið við 8 aðila um afslátt fyrir rammasamningsaðila af námskeiðum.
Rammasamningur um ljósritunarvélar, fjölnotatæki, pappírstætara og prentþjónustu tók gildi 2. febrúar 2010. Samningnum var skipt upp í 4 flokka og samið við Kjaran, Nýherja, Opin kerfi, Optima, Otto B. Arnar og Pennann Tækni.
Nýtt í þessum samningi er að tekinn var inn flokkurinn prentþjónusta en í þann flokk falla rekstrarleigu- og þjónustusamningar sem seljendur eru að bjóða innan samnings.
Meðfylgjandi tafla sýnir skiptingu í samningi.
Rammasamningur um ljósritunar pappír tók gildi 1. febrúar sl.
