Fréttalisti

vistvanradstefna_5_mars

Vistvæn innkaup - Ráðstefna á Grand hótel 5. mars nk.

25.2.2010

Ríkiskaup vekja athygli á ráðstefnu um vistvæn innkaup sem umhverfisráðuneytið og fjármálaráðuneytið standa fyrir á Grand hótel 5. mars nk. Ráðstefnan hefst kl. 8:00.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra mun setja ráðstefnuna og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra mun kynna stefnu ríkisins í vistvænum innkaupum.

Meðal annarra fyrirlesara Má nefna Rikke Dreier, verkefnisstjóra hjá SKI í Danmörku sem mun fjalla um reynslu dana af innleiðingu vistvænnar stefnu í opinberum innkaupum. Fyrirlestur Rikke er fluttur á ensku.

Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna og fyrrverandi umhverfisráðherra.

Dagskrá:

08:00 Mæting og morgunverður í Gullteigi á Grand Hótel
08:30 Setning ráðstefnunnar.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
08:40 Stefna ríkisins í vistvænum innkaupum.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
09:00 Initiative and action plans on public procurement.
Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI, innkaupaþjónusta ríkis og sveitarfélaga í Danmörku.
09:30 Vistvæn innkaup hjá Reykjavíkurborg.
Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar
09:40 Vistvæn innkaup út frá sjónarhorni minni sveitarfélaga.
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi
09:50 Pallborðsumræður.
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa
Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi
Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI í Danmörku
10:15 Ráðstefnuslit.

Aðgangur er ókeypis.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á heimasíðu umhverfisráðuneytisins: http://www.umhverfisraduneyti.is/skraning-a-radstefnu/

Kynnið ykkur allt milli himins og jarðar um vistvæn innkaup á:  http://vinn.is/

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.