Fréttalisti

haskolasjukrahus2

LSH velur 5 teymi til þátttöku í samkeppni um nýtt háskólasjúkrahús.

Alls bárust sjö umsóknir um þátttöku í forvali hönnunarsamkeppninnar og uppfylltu sex teymi tilskyldar hæfniskröfur. Fimm stigahæstu teymunum verður nú boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppninni

22.2.2010

Nú er ljóst að yfir 700 íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni nýs Landspítala við Hringbraut. Tilkynnt var um niðurstöður forvals samkeppninnar á kynningarfundi sem verkefnisstjórn nýs Landspítala efndi til í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra.

Alls bárust sjö umsóknir um þátttöku í forvali hönnunarsamkeppninnar og uppfylltu sex teymi tilskyldar hæfniskröfur. Fimm stigahæstu teymunum verður nú boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppninni en ábyrgðaraðilar þeirra eru Mannvit hf., Almenna verkfræðistofan hf., TBL arkitektar ehf., Verkís hf. og Efla hf. Fjögur fyrstnefndu teymin hlutu fullt hús stiga í hæfismatinu, 180 stig, og fimmta teymið hlaut 160 stig en lágmarksstigafjöldi teymis til að teljast hæft var 135 stig.

Þátttakendur í teymunum fimm eru:

Teymi 1: 180 stig - Ábyrgðaraðili teymis er Mannvit hf, -  Arkís,THG arkitektar, Landmótun

Samstarfsaðilar: Torgið Teiknistofa Rambøll Danmark Aarhus Arkitekterne

     

Teymi 2: 180 stig - Ábyrgðaraðili teymis er Almenna verkfræðistofan hf, - Arkitektur.is Basalt arkitektar Hnit verkfræðistofa Hornsteinar arkitektar Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar VSI öryggishönnun og ráðgjöf

Samstarfsaðilar: Freyr Jóhannesson, byggingartæknifræðingur Steinar Sigurðsson, arkitekt Arup Amsterdam dJGA Tribal - Health

     
Teymi 3: 180 stig - Ábyrgðaraðili teymis er TBL arkitektar ehf, - Ferill – verkfræðistofa Raftákn John Cooper Architecture Origo arkitektgruppe AS COWI A/S Vinnuvernd HCP      
Teymi 4: 180 stig - Ábyrgðaraðili teymis er Verkís hf, - VA - arkitektar Arkþing arkitektar Úti og inni sf. Teiknistofa arkitekta Landslag Arkitema Arkitektar Grontmijr Carl Bro
Teymi 5: 160 stig - Ábyrgðaraðili teymis er Efla hf, - Ask arkitektar Bjarni Snæbjörnsson, arkitekt Kanon arkitektar Lagnatækni Landark Medplan Norconsult Teiknistofan Tröð

Hægt verður að fylgjst með framvindu og fréttum af verkefnu
á sérstökum vef LSH:   haskolasjukrahus2  Smellið á táknmyndina


 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.