Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • forval_LSH

Tilboð opnuð í forvali fyrir samkeppni um hönnun á nýjum Landspítala við Hringbraut

Sjö teymi tóku þátt

16.2.2010

Samkeppnin tekur til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut og útfærslu á 66000 m2 nýbyggingu þar. Að lokinni samkeppni er gert ráð fyrir að vinningshafi vinni að frumhönnun, gerð forsagnar um stærðir, eiginleika og tæknilegar kröfur, gerð útboðsgagna auk eftirlits með endanlegri hönnun og aðstoð við verkefnisstjórn.

Á næstu vikum verða vali fimm teymi úr hópi þessara sjö til að taka þátt í hönnunarsamkeppninni sjálfri.

Sameining sjúkrahúsa og háskólastarfsemi.

Landspítali háskólasjúkrahús var stofnaður á árinu 2000 með sameiningu tveggja spítala í Reykjavík. Spítalinn, sem er háskólasjúkrahús og samþættir klíníska starfsemi, rannsóknir og kennslu, rekur nú starfsemi sína á nokkrum stöðum í Reykjavík, þar á meðal bráðastarfsemi á tveim stöðum. Ætlunin er að sameina bráðastarfsemina á lóð spítalans við Hringbraut. Fyrirhugað er, í samvinnu HÍ, LSH og Keldna, að byggja upp á lóðinni samofna starfsemi spítalans, kennslu- og rannsóknaraðstöðu í heilbrigðisvísindum og sjúkdómum dýra.

Samkeppnin

Að loknu forvali verður lögð fram keppnislýsing með nánari lýsingu verkefnis samkeppninnar, ásamt áherslum verkkaupa og dómnefndar. Fylgigögn samkeppninnar eru m.a. gögn frumathugunar og endurskoðun hennar.

Eins og áður hefur komið fram er það meginforsenda þess verkefnis sem framundan er að ljúka sameiningu tveggja stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu þannig að starfsemin í Fossvogi flyst á Hringbraut.

Verkefni þátttakenda í samkeppninni verður tvíþætt. Annars vegar eiga keppendur að skila tillögu að áfangaskiptu skipulagi fyrir svæðið í heild og hins vegar að gera tillögu að útfærslu á 1. áfanga þess sem er spítalastarfsemi í 66.000 m2 nýbyggingu.

 Sjá fréttaflutning RÚV í kvöldfréttum 15. febrúar.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica