Fréttalisti
Rammasamningsútboð Ríkiskaupa 2010 - Kynningarauglýsing
Ríkiskaup kynna fyrirhuguð rammasamningsútboð á árinu 2010
Ríkiskaup kynna fyrirhuguð útboð á árinu 2010.
Tilgangurinn með kynningarauglýsingu er m.a. að kynna áhugasömum birgjum og kaupendum þessi áform með góðum fyrirvara. Samningarnir eru almennt við helstu seljendur á viðkomandi markaði en allir áhugasamir birgjar eru hvattir til að kynna sér samningana og útboðin.
Endurútboð rammasamninga 2010 Tímasetning
Bleyjur og undirlegg f. sjúkrastofnanir 1. ársfjórðungur
Prentun ( samhliða grafískri hönnun) 2. ársfjórðungur
Ný rammasamningsútboð 2010 Tímasetning
Kaup á viðhaldsþjónustu f. fasteignir ríkisins 1. ársfjórðungur
Þjónusta verkfræðinga og arkitekta 1. ársfjórðungur
Grafísk hönnun ( samhliða prentun) 2. ársfjórðungur
Öryggisgæsla 2. ársfjórðungur
Flugfargjöld innanlands 2. ársfjórðungur
Gisting innanlands 2. ársfjórðungur
Flugfargjöld utanlands 3. ársfjórðungur
Tilkynning um ofangreind útboð er einnig send til birtingar á EES.
Auglýsinguna verður að finna hér á vef Ríkiskaupa auk þess sem hún mun birtast í Morgunblaðinu laugardaginn 23. janúar 2010.
Allar stofnanir og fyrirtæki ríkisins eru sjálfkrafa aðilar að nýjum rammasamningum og þurfa ekki að sækja um það sérstaklega.
Ef hins vegar stofnun eða fyrirtæki telur hag sínum betur borgið utan tiltekinna rammasamninga getur viðkomandi sagt sig frá rammasamningi með skriflegu erindi til Fjármálaráðuneytis og Ríkiskaupa þar sem færð eru rök fyrir úrsögn úr samningi. Slík úrsögn þarf að berast áður en til útboðs kemur.
Sveitarfélög sem kjósa að vera aðilar að rammasamningskerfinu verða hins vegar að staðfesta sína aðild árlega.
Hægt er að skoða yfirlit á vef Ríkiskaupa yfir hvaða samningar eru í gildi á hverju tíma og við hvaða birgja. Rammasamningar eru ætíð boðnir út á EES svæðinu, auglýstir hérlendis hver þeirra fyrir sig og öllum gefinn kostur á að bjóða. Áhugasamir geta fengið tilkynningar um öll útboð á vegum Ríkiskaupa í tölvuposti með því að skrá sig á póstlista Ríkiskaupa og velja útboð.

