Fréttalisti

group

Nýir rammasamningar fyrir ríkið

Enn eykst vöru- og þjónustuúrval í rammasamningum Ríkiskaupa. Nýlega tóku gildi samningar um kaup á matvælum, túlka- og þýðingaþjónustu auk kaupa á raftækjum og byggingavöru

21.12.2009

Ríkiskaup f. hönd ríkisins bjóða út og gera rammasamninga um kaup á vöru og þjónustu fyrir oinberar stofnanir og fyrirtæki auk sveitarfélaga og þeirra undirstofna sem eru aðilar að rammasamningskerfi Ríkiskaupa.

Árið 2009 var gott ár fyrir aðila að rammasamningakerfi Ríkiskaupa því fjölmargir nýir samningar bættust í þá flóru rammasamninga sem fyrir var.

Má þar helsta nefna samninga um sérfræðiþjónustu s.s. lögfræðiráðgjöf, endurskoðun og reikningsskil, ráðgjöf í upplýsingatækni. Kaup á raforku til stofnana ríkisins voru einnig boðin út á árinu og gerður rammasamningur í kjölfarið. Nýlega tóku svo gildi nýir rammasamningar um kaup á ferskum og frosnum matvælum, raftækjum og byggingavöru auk túlka- og þýðingaþjónustu.

Allar upplýsingar fyrir kaupendur um kjör og seljendur í þessum nýju samningum er að finna á rammavef Ríkiskaupa.

Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir nýja rammasamninga um túlka- og þýðingarþjónustu

 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.