Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Rammafroskur_Chef

Nýr rammasamningur um fersk og frosin matvæli

Samningurinn tók gildi 30.11.2009

2.12.2009

Ríkiskaup gerðu nýverið rammasamning við 12 aðila um fersk og frosin matvæli auk fundaveitinga. Áður var til rammasamningur um aðra matvöru s.s. pakka- og dósavöru, kex og brauð, frosið grænmeti, kaffi ofl.

Nýi rammasamningurinn sem tók gildi 30.nóvember sl. nær yfir ferskt og frosið kjöt og fisk, unnar kjöt- og fiskvörur, álegg í neytendapakkningum, ferskt grænmeti og ávexti auk kaffi- og fundaveitinga þ.m.t gos og ávaxtasafa.

Flokkar útboðsins voru:

1.   Kindakjöt

2.   Nautgripakjöt

3.   Svínakjöt

4.   Annað kjöt (s.s. kjúklingur)

5.   Fiskur

6.  Unnar kjöt- og fiskvörur

7.   Hráar/soðnar saltaðar vörur

8.   Álegg í neytendapakkningum

9.   Grænmeti og ávextir

10. Gos, sódadrykkir og ávaxtasafar

11. Kaffi- og fundarmatur (samlokur, bakkelsi o.fl.)

 

Samið var við eftirfarandi aðila:

Bananar, www.bananar.is, Esja kjötvinnsla, www.esja.is, Ferskar kjötvörur, www.ferskar.is,

Gæðakokkar, www.geadakokkar.is, Kjarnafæði, www.kjarnafaedi.is, Mata, www.mata.is,

Matfugl, www.matfugl.is, Maxí heildsala, www.maxi.is, Norðanfiskur, www.nordanfiskur.is,

Síld og fiskur, sofus@ali.is, Stjarnan (Subway), www.subway.is, Ölgerðin, www.olgerdin.is,

Tafla með skiptingu seljenda niður á flokka: (Smellið á töfluna til að sjá hana stærri)

MatvaraRK0802

Á næstu dögum munu Ríkiskaup senda verð- og vörulista ofangreindra seljenda til áskrifenda rammasamningakerfisins. 

Ennfremur munu seljendur hafa sjálfir samband við kaupendur og biðjum við ykkur um að taka vel á móti þessu nýju aðilum að rammasamningakerfinu og söluaðilum þeirra.

Allar nánari upplýsingar um kjör í þessum rammasamningi eru aðgengilegar kaupendum á rammavefnum.

Mynd frá undirritun samnings

Matvæli_Undirritun

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica