Fréttalisti

flugkort

Samningur við Flugfélag Íslands um afsláttarkjör á flugfargjöldum innanlands fyrir ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki ríkisins tók gildi 18. nóvember sl.

Ríkiskaup gerðu á dögunum samning f. hönd ríkisins við FÍ um að lágmarki 20% afslátt af flugfargjöldum innanlands.

2.12.2009

Ríkiskaup gerðu á dögunum samning f. hönd ríkisins við FÍ um að lágmarki 20% afslátt af flugfargjöldum innanlands. Skilyrði er að vera handhafi Flugkorts FÍ.

Megininnihald samningsins er eftirfarandi:

Allar opinberar stofnanir munu njóta að lágmarki 20% afsláttar af fullum verðum

(“Forgangur”) sé greitt með Flugkorti Flugfélags Íslands. Stofnanir sem eiga

veruleg viðskipti við Flugfélag Íslands munu enn fremur, í samræmi við veltu,

njóta betri kjara samkvæmt eftirfarandi töflu:

Nettó heildarvelta á ári

10 milljónir og yfir

30%

5 – 10 milljónir

25%

Minna en 5 milljónir

20%

Skilyrði er að vera handhafi Flugkorts. Engin stofnun mun njóta lakari kjara en

þær njóta nú þegar. Þær stofnanir sem ekki hafa Flugkort þurfa að sækja um það

á heimasíðu Flugfélags Íslands. Þær stofnanir sem nú þegar hafa Flugkort en

njóta annarra kjara þurfa að hafa samband við Gróu Ásgeirsdóttur hjá FÍ.

Um Flugkortið:

http://www.flugfelag.is/Forsida/Thjonusta/Fyrirtaekjathjonusta/Flugkort/

Um tryggingaskilmála á flugkorti: 

Http://www.tm.is/media/skilmalar/einn-dalkur/einn-dalkur-363.pdf

 Almennir skilmálar hjá FÍ: 

http://www.flugfelag.is/Forsida/Upplysingar/Skilmalarfargjaldaogsamningsskilmalar/

 

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.