Fréttalisti

Frimann_Les

Nýtt útboð - Rammasamningur um rekstrarráðgjöf

Ríkiskaup kynna nýtt rammasamningsútboð á rekstrarráðgjöf

20.11.2009

Rekstrarráðgjöf er að færast í vöxt hjá hinu opinbera þar sem rekstur stofnana og opinberra fyrirtækja tekur sífelldum breytingum í átt til þess sem tíðkast á almennum markaði.
Nú er auk þess tækifæri til að hagræða í ríkisrekstri og auka skilvirknina. Þörf fyrir rekstrarráðgjafa er því engu minni nú en áður.
 
Af því tilefni hafa Ríkiskaup ráðist í rammasamningsútboð á rekstrarráðgjöf sem bætist í þá flóru rammasamninga um ráðgjöf sem áður hafa verið boðnir út, um lögfræðiráðgjöf, endurskoðun og reikningsskil auk ráðgjafar í upplýsingatækni.
 

Útboð á rekstrarráðgjöf nær til eftirfarandi flokka:

  • Stjórnun og stefnumótun
  • Rekstrarráðgjöf um aðferðir, ferla, breytingar og uppbyggingu
  • Ráðgjöf um starfsmannastjórnun og símenntun/endurmenntun
  • Viðskipta og stjórnunarráðgjöf
 
Kynningarfundur um útboðið var haldinn í húsakynnum Ríkiskaupa þann 18. nóvember sl. og voru yfir 40 manns sem mættu til að kynna sér fyrirkomulag útboðsins og væntanlegra rammasamninga.
 
 


 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.