Fréttalisti

Rammafroskur_Chef

Eldhúsdagur Ríkiskaupa 22. janúar nk.

Kynningarfundur um nýja rammasamninga um matvæli og raftæki

15.1.2010

Eldhúsdagur Ríkiskaupa - Fagnaðu þorranum með okkur

Föstudaginn 22. janúar nk.

Grand hótel kl. 14.00 - 16.00

Fræðsluröðin okkar heldur áfram á nýju ári og nú er komið að því að kynna nýja rammasamninga um fersk og frosin matvæli sem lengi hefur verið beðið eftir. Einnig kynnum við sérstaklega nýjan rammasamning um raftæki. Þá munum við einnig fjalla stutt um eldri samninga s.s. um aðra matvöru og borðbúnað. Sem sagt allt það helsta sem við höfum að bjóða í rammasamningum fyrir eldhús, stór og smá, kaffistofur og mötuneyti.

14.00 - Kynntir verða nýir rammasamningar um fersk og frosin matvæli, nýir rammasamningar um raftæki auk eldri samninga um matvöru og borðbúnað.

14.30 - Hólmfríður Þorgeirsdóttir frá Lýðheilsustöð mætir og kynnir okkur leiðbeiningar frá Lýðheilsustöð varðandi hollustu og næringu.

15.00 - 16.00 Birgjar í nýju samningunum um matvæli og raftæki verða á staðnum til að kynna sig og sína vöru auk birgja í rammasamningi um borðbúnað.

Ríkiskaup hvetja alla sem sjá um mötuneyti og kaffistofur til að mæta og kynna sér samningana.

Skráning fer fram í netfang skraning@rikiskaup.is

Ríkiskaup áskilja sér allan rétt til að fella niður viðburði ef þátttaka er ekki nægjanleg þannig að ekki gleyma að skrá ykkur.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.