Fréttalisti
Velheppnuð afmælisráðstefna að baki
Ríkiskaup þakka öllum sem tóku þátt
Ríkiskaup þakka öllum sem tóku þátt í ráðstefnunni okkar í gær.
Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni var: "Geta opinber innkaup örvað nýsköpun?".
Það ríkti nokkur eftirvænting hjá ráðstefnugestum að sjá hvernig opinber innkaup innkaup gætu verið drífandi afl í nýsköpun og var þeim vangaveltum vel svarað í fjölmörgum fróðlegum erindum.
Kynntur var samstarfsvettvangur þriggja stofnana, Nýsköpunarmiðstöðvar, Umhverfisstofnunar og Ríkiskaupa og verður spennandi að fylgjast með því hver verða næstu skref.
Glærur fyrirlesara munu birtast á vefnum okkar síðar í dag undir fræðsluröðinni og þar geta áhugasamir nálgast upplýsingar um þeirra nálgun á málefninu.
Um leið vekjum við athygli innkaupafólks á því að Eldhúsdeginum sem áður var auglýstur 10. nóvember hefur verið frestað um 2 vikur. Nánari dagsetning verður auglýst síðar.
Nokkrar myndir frá ráðstefnunni - Smellið á myndirnar til að sjá stærri mynd:
Setningarávarp Þorsteinn I. Sigfússon Bás frá NMI - Impru Spjallað í kaffihléi
Samráð ? Góð stemmning Guðfinna og Júlíus
Málstofa - Kaup á ráðgjöf Málstofa - Lead Market Initiative

