Fréttalisti

rammafroskur_pera

Nýr rammasamningur um kaup á raforku

29.10.2009

Ríkiskaup minna á nýjan rammasamning um kaup á raforku, dreifingu og flutningi, fyrir ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki ríkisins.

Samningurinn var kynntur á velheppnuðum kynningarfundi á Grand hóteli, 28 október þar sem spunnust fjörugar umræður um framkvæmd og innihald samningsins og má sjá kynningarnar frá fundinum á vefnum okkar undir fræðsluröðinni. Ríkiskaup hvetja kaupendur til að skoða kynninguna um samninginn vel þar sem þar koma fram öll helstu atriði samnings.

Byrjað var að vinna að útboðinu fyririr tæpu ári og fór undirbúningur fram í samvinnu við nokkra af stærstu kaupendunum að raforku hjá ríkinu. Ákveðið var að allt yrði boðið út í einu útboði og krafa gerð um að flutningur og dreifing sem hluta af tilboði.

Útboð voru opnuð í lok ágúst og bárust aðeins 3 tilboð.

Samið hefur verið við HS orku, Orkusöluna ehf og Orkuveitu Reykjavíkur.

Ávinningur af útboðinu:

  • Afsláttur af orkuverði, um 35 til 45 milljónir (Án tillits til afslátta vegna fyrri samninga)
  • Allir kaupendur innan þessa samnings sem eru í viðskiptum hjá nýjum samningsaðilum eiga að njóta umsaminna kjara frá og með 01.11.2009

  • Hagræðing og sparnaður vegna:
    - breytinga á orku- og dreifitöxtum
    - fækkun mæla og mælistaða
    - sammæling afltaxta

Samkvæmt rammasamningi á seljandi að halda undirbúna fundi með fulltrúum Ríkiskaupa og stærstu kaupendum til að fara yfir aðgerðir til einföldunar og sparnaðar í orkukaupum og er gert ráð fyrir að fyrstu fundir verði ekki síðar en sex mánuðum eftir að samningur hefur verið undirritaður og síðan að jafnaði einu sinni á ári á samningstímanum.

Kaupendur eru hvattir til að sækja sér ráðgjöf varðandi sín raforkukaup hjá seljendum eða óháðum aðila og við minnum á eins og kom skýrt fram á fundinum að seljendaráðgjöf er sjaldnast óháð ráðgjöf.

Seljendur í samningi

Allar nánari upplýsingar um samninginn er að finna á rammavef Ríkiskaupa

 

 

 

 

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.