Fréttalisti
Hvatningar- og afmælisráðstefna Ríkiskaupa
Geta innkaup örvað nýsköpun?
Margt fróðlegra erinda verður á ráðstefnunni að vanda og er vel þess virði að fylgjast með í viðburðadagatali Ríkiskaupa þar sem við munum setja inn fróðleiksmola um erindin alla daga fram að ráðstefnunni. Þar er einnig hægt að skrá þátttöku.
Ráðstefnan er á Grand hótel, Sigtúni frá kl. 10.00 - 17.00
Að þessu sinni munum við bjóða upp á þrjár málstofur fyrir hádegið frá kl. 10.00 - 12.00 og eru ráðstefnugestir hvattir til virkrar þátttöku. Fjallað verður um kaup á ráðgjöf, Stefán Einar Stefánsson hjá Eþikos fjallar um siðferði í viðskiptum og María Kristín Gylfadóttir fræðir okkur LMI eða Lead Market Initiative verkefnið.
Að loknum léttum hádegisverði hefst síðan ráðstefnan og þar munum við velta fyrir okkur spurningunni: Geta innkaup örvað nýsköpun?
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni má nefna Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Kristíni Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar og Þórólf Árnason, forstjóra Skýrr.
Auk þeirra verða Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, Guðfinna S. Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri LC ráðgjafar, Baldur Þorgilsson hjá KINE og Halldór Ó. Sigurðsson, innkaupastjóri LSH með erindi.
Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaráðgjafi mun síðan loka mælendaskrá á léttu nótunum.
Ríkiskaup hvetja alla áhugasama um opinber innkaup og nýsköpun til að mæta á ráðstefnuna og leggja þannig sitt af mörkum til að byggja upp þennan mikilvæga málaflokk.


