Fréttalisti

frimann_vitameira

Fræðsluröð Ríkiskaupa - Dagskrá haustsins

Hvernig notum við rammasamninga ?

21.9.2009

Um leið og við þökkum frábæra þátttöku í fyrsta kynningarfundi haustsins á Grand hótel þann 15. september sl. viljum við kynna áframhaldandi dagskrá haustsins.

Glærurnar frá fundunum 15. og 29. september eru komnar inn á fræðsluvefinn. Þar verður hægt að fylgjast með næstu viðburðum á viðburðadagatalinu og sjá efni frá eldri viðburðum.

Stutt yfirlit um næstu viðburði:

  • 28. október – Nýr rammasamningur um raforku. Nýr rammasamningur um raforku kynntur á Grand hótel - Dagskrá
  • 3. nóvember – Afmælisráðstefna Ríkiskaupa 2009 - Geta opinber innkaup örvað nýsköpun ? Nánar...
  • ATH breytt dags. - 23. nóvember – “Eldhúsdagur Ríkiskaupa” Kynntir nýir rammasamningar um fersk matvæli

Ríkiskaup hvetja kaupendur til að mæta og kynna sér nýja samninga, leiðir til hagræðingar og sparnaðar um leið og þeir kynnast seljendum og þeirra þjónustu.

Skráning á viðburði fer fram í netfang skraning@rikiskaup.is og allar nánari upplýsingar gefur Birna G. Magnadóttir 530 1446 - birna@rikiskaup.is



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.