Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • Fjarskipti_LSH

Ríkiskaup endurtaka útboð á fjarskiptum fyrir LSH

Ríkiskaup hafa ákveðið að bjóða út að nýju fastlínu, farsíma- og gagnaflutningsþjónustu fyrir Landspítala í kjölfar úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 19/2009.

7.9.2009

Útboð á fjarskiptum fyrir LSH endurtekið

Ríkiskaup hafa ákveðið að bjóða út að nýju fastlínu, farsíma- og gagnaflutningsþjónustu fyrir Landspítala í kjölfar úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 19/2009.

Tilboð í framangreindu útboði voruð opnuð í mars sl. og bárust tilboð frá tveimur aðilum, Símanum hf og Og fjarskiptum ehf (Vodafone) og buðu báðir í alla hluta útboðsins sem var tvískipt, þ.e. 1. hluti, gagnaflutningsþjónusta og 2. hluti, fastlínu- og farsímaþjónusta.
Tilboðsupphæðir voru:

Síminn hf

1. hluti: kr:  9.177.170.-  2. hluti: kr: 226.943.170.-  samtals: 236.120.340,-

Og fjarskipti ehf

1. hluti: kr: 12.390.958.-  2. hluti: kr: 184.848.178.-  samtals: 197.239.136,-

Á gildistíma tilboða var óskað eftir því við bjóðendur að þeir framlengdu tilboð sín til 22. júlí 2009 en því var hafnað af einum bjóðanda, þ.e. Símanum hf, og kærði hann jafnframt þá ákvörðun Ríkiskaupa að óska eftir framlengingu tilboða til kærunefndar útboðsmála. Kærunefnd útboðsmála tók ákvörðun í kjölfarið að stöðva allt útboðið.

Þann 29. ágúst sl. kvað kærunefndin upp endanlegan úrskurð í málinu þess efnis að Ríkiskaupum hafi ekki verið heimilt að framlengja gildistíma tilboða í framangreindu útboði. Þrátt fyrir að Ríkiskaup séu ósammála þeirri niðurstöðu kærunefndar hafa ákvörðun og úrskurður kærunefndar útboðsmála í för með sér að ekki er lengur neitt tilboð í gildi, sbr. 74. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007, og verður því áðurnefnd þjónusta boðin út að nýju.

Nánari upplýsingar veitir Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, í s. 530 1400

Sjá úrskurð kærunefndar útboðsmála á vef þeirra.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica