Nýr ramma-samningur um fjarskipti og internetþjónustu
Samið við Nova, Símann, Skyggni og Vodafone
Nýr rammasamningur um síma og internetþjónustu tekur gildi 1. september nk.
Fjórir aðilar buðu í rammasamningsútboði Ríkiskaupa; Nova, Síminn, Skyggni rog Vodafone.
Leitað var tilboða í eftirfarandi flokka:
1. Talsímaþjónusta
2. Farsímaþjónusta (GSM og 3G)
3. Internetþjónusta
4. Gagnaflutningur
Tveir aðilar buðu í alla flokkana fjóra, Síminn og Vodafone ( Og fjarskipti) og tveir aðilar til viðbótar buðu annars vegar í farsímaþjónustu og hins vegar í Internetþjónustu, Nova og Skyggnir.
Nova býður aðgang að 3G kerfi sínu og reikiaðgang í GSM kerfi Vodafone. Raunar er um gagnkvæman samning að ræða þannig að viðskiptavinir Vodafone með 3G síma reika í 3G kerfi Nova. Nova býður lægsta verðið fyrir 3G/GSM símtöl og Internetþjónustu á farsímaneti af þeim þremur aðilum sem bjóða í þá þætti.
Í Internetþjónustu á föstum samböndum bauð Skyggnir í meginatriðum endursölu á Internettengingum hjá Símanum og Og fjarskiptum. Þó að þjónustunet þeirra sé ekki eins útbreitt og hinna tveggja er verðið hjá þeim ívið lægra en hjá báðum hinum aðilunum.
Gengið hefur verið frá samningum við eftirfarandi aðila í eftirfarandi flokkum:
| Þjónustuflokkar | Síminn | Vodafone | Nova | Skyggnir |
| Talsímaþjónusta | X | X | ||
| Farsímaþjónusta | X | X | X | |
| Internetþjónusta | X | X | X | X |
| Gagnatengingar | X | X |
Kynningarfundur vegna samninganna verður haldinn á Grand hótel, þriðjudaginn 15. september.
Sjá nánar um dagskrána á næstu dögum á viðburðadagatali Ríkiskaupa

