Fréttalisti

eldsneyti

Kærunefnd hafnar kröfu Olíuverzlunar Íslands um stöðvun á samningi

Olís fór fram á stöðvun á samningi um kaup á eldsneyti og olíu fyrir skip og flugvélar

25.6.2009

Í kæru sinni til Kærunefndar útboðsmála, fór Olíuverzlun Íslands fram á stöðvun á samningi um kaup á eldsneyti og olíu fyrir skip og flugvélar. Kærunefnd hafnaði þeirri kröfu í úrskurði sínum þann dags. 16. júní sl.

Í kjölfar útboðs hjá Ríkiskaupum var samið við N1 og Skeljung og hefur samningurinn þegar tekið gildi.

Eitt af þeim málum sem greindi á um í kæru Olís var krafa Ríkiskaupa í útboðsgögnum um að verðlistar skyldu vera “almennir og opinberir”. Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að þetta orðalag væri óskýrt og byði upp á mismunandi túlkun aðila á því í hverju það felst.

Ríkiskaup munu eftirleiðis gera skýra kröfu til allra bjóðenda um hvernig verðlistar skulu birtir eða vera með öðru móti aðgengilegir fyrir kaupendur. Auðvelt aðgengi að verðlistum bjóðenda í rammasamningum gerir kaupendum kleift að fylgjast með þróun verðbreytinga. 

Þess má geta að nýr rammasamningur hefur einnig tekið gildi um kaup á olíu og eldsneyti f. ökutæki og vélar ríkisins. Þar var  einnig samið við N1 og Skeljung.  

Allar nánari upplýsingar um þessa samninga eru aðgengilegr fyrir kaupendur á rammavef Ríkiskaupa.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.