Fréttalisti

kynning_Raforka_10062009

Ríkiskaup bjóða út kaup á raforku fyrir ráðuneyti, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki

Útboðið nær til raforkukaupa allra ráðuneyta, ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja

12.6.2009

Að frumkvæði fjármálaráðuneytisins bjóða Ríkiskaup út innkaup á raforku fyrir ráðuneyti, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki. Útboðið er auglýst nú um helgina (14. júní 2009) og verða tilboð opnuð 23. júlí n.k.

Útboðið felur í sér kaup á allri raforkunotkun, ásamt flutningi og dreifingu raforkunnar. Eftirfarandi raforkukaup eru til útboðs:

·          1899 notkunarstaðir (mælistaðir).

·          Almenn orkusala á 1801 sölustöðum.

·          Samtals um 53,9 MWh almenn orkunotkun.

·          Aflmæld orka á 98 sölustöðum.

·          Samtals um 20,4 MW aflnotkun með um 151,5 MWh orkunotkun.

Útboðið nær til raforkukaupa allra ráðuneyta, ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja en ekki er gert ráð fyrir þátttöku sveitarfélaga í þessum samningi og þau þurfa því ekki að segja sig frá þessu útboði.

Umfang þessara viðskipta, orkukaup með flutningi og dreifingu, voru um 1.5 milljarður króna á árinu 2008. Á grundvelli þessa mikla umfangs má vænta hagkvæmustu innkaupa f. ríkið í heild.

Það er von Ríkiskaupa að rammasamningur verði komin á 1. september nk. Þar sem einhverjar stofnanir og ríkisfyrirtæki eru þegar með samninga um raforkukaup er rétt að segja þeim upp hið fyrsta og sinna útboðsskyldu um þessi kaup með þátttöku.

Viðkomandi eru beðnir að upplýsa Ríkiskap  um hvenær þessir samningar eru lausir þar sem þær upplýsingar þurfa að koma fram í útboðsgögnum.

Telji stofnanir hins vegar hag sínum betur borgið utan þessa nýja rammasamnings hafa þær frest til 10. júlí nk. til að segja sig frá honum með skriflegum rökstuðningi til Ríkiskaupa. Viðkomandi stofnun er þá útilokuð frá þátttöku í rammasamningnum allan gildistíma hans.

Vel sóttur kynningarfundur fyrir stærstu kaupendur var haldinn í húsnæði Ríkiskaupa 10. júní sl. þar sem farið var yfir helstu atriði útboðsins.

Allar nánari upplýsingar veitir Magnús  G. Sigurgeirsson, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.