Fréttalisti
Ríkiskaup kynna rammasamninga um sérfræðiþjónustu
Á annað hundrað manns sóttu kynningarfund Ríkiskaupa á Grand hótel í morgun
Ríkiskaup buðu til kynningarfundar um rammasamninga þar sem kynntir voru nýgerðir rammasamningar um ráðgjafarþjónustu.
Þjónustan sem um ræðir er lögfræðiráðgjöf, endurskoðun og reikningshald ásamt ráðgjöf í upplýsingatækni.
Í upphafi fundar fjallaði Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, stuttlega um nýsköpun og rammasamninga. Ingi K. Magnússon frá Ríkisendurskoðun lýsti því næst kaupum Ríkisendurskoðunar á ráðgjöf og lagði áherslu á þá þætti þar sem rammasamningar munu nýtast best. Jón Magnússon frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fjallaði einnig um kaup ráðuneytisins á ráðgjöf og hvernig rammasamningarnir myndu nýtast þeim.
Guðrún Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Ríkiskaupum kynnti að lokum niðurstöður útboðanna í þessum þremur þjónustuflokkum, lögfræðiráðgjöf, endurskoðun og reikningshald ásamt ráðgjöf um upplýsingatækni.
Lögð var mikil áhersla á það af öllum aðilum að kaupendur kynni sér innihald og uppbyggingu þessarra samninga og við hverja var samið.
Alls bárust 84 tilboð í þessa þrjá þjónustuflokka. 31 aðili bauð í ráðgjöf um upplýsingatækni, 28 tilboð bárust í endurskoðun og reikningshald og 25 tilboð bárust í lögfræðiráðgjöf. Allir aðilar töldust hæfir og var því samið við alla sem tryggir mikla breidd í þjónustuframboði fyrir kaupendur.
Helstu forsendur þess að ráðist var í útboð á þessum þjónustuflokkum eru:
a) Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu
b) Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð
c) Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifæri til að keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu.
d) Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu.
Nú þegar rammasamningarnir hafa tekið gildi geta stofnanir og fyrirtæki ríkisins leitað til þeirra ráðgjafa sem eiga aðild að samningum um viðkomandi þjónustu og ýmist keypt þjónustu beint af þeim eða farið í svokallað örútboð innan rammasamnings með einstök stærri verkefni.
Með notkun rammasamninga er útboðsskylda uppfyllt, jafnt innanlands sem á Evrópska efnahagssvæðinu EES.
Glærur frá fundinum er að finna hér á fræðsluvefnum.

