Fréttalisti

prentverk1

Breytingar á rammasamningum

Tilkynning vegna gjaldþrota Pennans og A4 skrifstofuvara

30.4.2009

Vegna gjaldþrota Pennans kt: 451095-2189 og A4 skrifstofuvara ehf. kt: 670607-0540 vilja Ríkiskaup koma eftirfarandi á framfæri við viðskiptamenn sína:

Erindi bárust bæði frá Pennanum og A4 skrifstofuvörum með beiðni um að þeir rammasamningar sem þessi félög voru aðilar að áður en til gjaldþrots kom, yrðu færðir yfir á ný félög á nýjum kennitölum sem stofnuð voru í kjölfarið.

Eftir að hafa fjallað um erindi beggja á viðskiptalegum grundvelli var ákveðið að leyfa yfirfærslu á þeim samningum sem falla undir flokk RK 2.15 sem eru ritföng og skrifstofuvörur.

Forsenda þeirrar ákvörðunar er að þar sem aðeins einn seljandi sé eftir í þessum samningsflokki sé framboð ekki nægt til að fullnægja þörfum kaupenda.

Beiðnum Pennans og A4 skrifstofuvara um yfirfærslu á samningum í öðrum flokkum var hafnað á þeirri forsendu að aðrir seljendur í þessum samningsflokkum séu þess bærir að sinna þörfum kaupenda. Þess ber að geta að útboð munu verða í öllum öðrum RK flokkum sem um ræðir á árinu 2009 nema RK 2.01 Ljósritunarpappír en sá samningur gildir til janúarloka 2010.

Upplýsingar um seljendur í þessum samningum eftir breytingar má sjá í yfirliti rammasamninga á vef Ríkiskaupa.

Allar frekari upplýsingar f. kaupendur um kjör og afslætti í þessum samningum má finna á rammavef Ríkiskaupa.

Á meðfylgjandi mynd má til glöggvunar sjá nánar þá samningsflokka sem um ræðir og stöðuna á þeim eftir breytingar:

 Penninn_A4

 

Ríkiskaup beina þeim eindregnu tilmælum til viðskiptamanna sinna að þeir kynni sér þessar breytingar vel og beini viðskiptum sínum til ofangreindra seljenda.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.