Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • fraopnunutboða

Opnun tilboða í útboðum um ráðgjöf og þjónustu f. ríkið

Gífurlegur áhugi og fjölmörg tilboð bárust

22.4.2009

Nú styttist í fyrstu rammasamningana um ráðgjöf og þjónustu f. ríkið.

Það er ljóst að gífurlegur áhugi hefur verið fyrir útboðunum á þessum þremur fyrstu þjónustuflokkum; endurskoðun og reikningsskilum, lögfræðiþjónustu og ráðgjöf í upplýsingatækniþjónustu.

Opnunarfundir hafa verið haldnir í þremur nýjum útboðum um ráðgjöf og þjónustu hjá Ríkiskaupum í gær og dag.

Alls bárust 84 tilboð í þessa þrjá þjónustuflokka. 31 aðili bauð í ráðgjöf um upplýsingatækni, 28 tilboð bárust í endurskoðun og reikningsskil og 25 tilboð bárust í lögfræðiþjónustu.

Helstu forsendur þess að ráðist var í útboð á þessum þjónustuflokkum eru:

a) Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu

b) Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð

c) Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifæri til að keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu.

d) Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu.

Ljóst er að mikil vinna er framundan hjá Ríkiskaupum við að fara yfir og meta öll tilboðin en vonir standa til að niðurstaða verði komin úr öllum þremur innan fárra vikna.

Þegar rammasamningar hafa tekið gildi geta stofnanir og fyrirtæki ríkisins leitað til þeirra ráðgjafa sem eiga aðild að samningum um viðkomandi þjónustu og ýmist keypt þjónustu beint af þeim eða farið í svokallað örútboð innan rammasamnings með einstök stærri verkefni.

Með notkun rammasamninga er útboðsskylda uppfyllt, jafnt innanlands sem á Evrópska efnahagssvæðinu EES.

Þá er einnig á döfinni nýtt rammasamningsútboð á síma- og fjarskiptaþjónustu.

Síma- og internetþjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir ríkisins var fyrst boðin út í rammasamningsútboði árið 2005 og eru þeir samningar að renna út í haust.

Því standa Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma, fyrir útboði á talsímaþjónustu, farsímaþjónustu ásamt gagnaflutninga- og internetþjónustu fyrir stofnanir og fyrirtæki ríkisins.

Heimilt er að bjóða í einstaka flokka útboðsins, en sú þjónusta sem leitað er eftir tilboðum í, er í eftirfarandi flokkum:

1. Talsímaþjónusta.

2. Farsímaþjónusta (GSM og 3G).

3. Internetþjónusta.

4. Gagnatengingar.

Um er að ræða margvíslega þjónustu er varðar flutning á tali og gögnum um símalínu eða þráðlaus samskipti. Ennfremur flutning sem veitt er yfir, eða á, Internetið hvort sem um er að ræða aðgang að Internetinu eða vistun vefja og tengda þjónustu.

Tilboð verða opnuð í húsnæði Ríkiskaupa, fimmtudaginn 28. maí 2009 kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica