Fréttalisti

ICLEI_Undirritun

Ný stefna um vistvæn innkaup sem hluti af innkaupastefnu ríkisins

Ríkisstjórnin samþykkir stefnu um vistvæn innkaup

31.3.2009

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra undirrituðu stefnu um vistæn innkaup á alþjóðaráðstefnu ICLEI og Reykjavíkurborgar um vistvæn innkaup sem haldin var í Reykjavík á dögunum.

Í innkaupastefnu ríkisins sem samþykkt var árið 2002 segir m.a. að við innkaup skuli tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Í stefnunni um vistvæn innkaup sem umhverfisráðherra og fjármálaráðherra undirrita er þessi stefna útfærð nánar svo hægt sé að vinna að markmiðinu á markvissari hátt.

Grunnur innkaupastefnu ríkisins byggir á því að ávallt skuli leitast við að gera hagstæðustu kaup þar sem leitast er við að hámarka ávinning með kaupum jafnframt því að lágmarka kostnað. Með vistvænu innkaupastefnunni munu umhverfissjónarmið einnig að koma inn í þessa jöfnu svo þau séu einnig höfð til hliðsjónar við mat á valkostum. Þessi aðferð kallar á að þeir sem annast innkaup fyrir hönd ríkisins afli sér faglegrar þekkingu á umhverfismálum til jafns við þekkingu á innkaupamálum.

Stýrihópur um vistvæn innkaup hefur starfað um nokkurt skeið að stefnumótun um vistvæn opinber innkaup. Þar hefur verið lögð rík áhersla á samstarf ríkis og sveitarfélaga og hefur stýrihópurinn verið skipaður fulltrúum frá umhverfisráðuneytinu, Ríkiskaupum, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ. Stefna þessi byggir á undirbúningsstarfi stýrihópsins þar sem m.a. var tekið mið af því sem best gerist á alþjóðlegum vettvangi við setningu stefnu um vistvæn opinber innkaup.

Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins.

ICLEI fjallar einnig um þennan einstaka viðburð á EcoProcura vefnum.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.