Fréttalisti
Ríkiskaup undirbúa útboð á ráðgjöf og sérfræðiþjónustu
Fyrstu útboð á rammasamningum um ráðgjöf og sérfræðiþjónustu væntanlega auglýst í mars.
Fyrstu útboð á rammasamningum Ríkiskaupa um ráðgjöf og sérfræðiþjónustu verða væntanlega auglýst í mars.
Umfangsmikil undirbúningsvinna vegna rammasamningsútboða um ráðgjöf og sérfræðiþjónustu hefur staðið yfir hjá Ríkiskaupum og er nú farið að grilla í afurðir þeirrar vinnu.
Þetta er fjölbreytt svið og mun þurfa fjölmarga samninga til að spanna það allt. Fyrstu samningarnir verða væntanlega um endurskoðun, lögfræðiþjónustu og ráðgjöf um upplýsingatækni en auk þessara flokka er verið að skoða möguleikana á útboðum á ráðningarþjónustu, auglýsingaþjónustu og markaðsrannsóknum svo eitthvað sé nefnt.
Leitað verður tilboða í þjónustu á þeim sviðum sem hvert rammasamningsútboð nær til. Útboðin ná m.a. til gjaldskrár og kostnaðar og þegar innsend tilboð hafa verið metin verða gerðir rammasamningar við þá bjóðendur sem valdir verða. Allir bjóðendur þurfa að uppfylla ákveðin hæfisskilyrði. Tilboðsfrestur verður 52 dagar.
Þegar rammasamningar hafa tekið gildi geta stofnanir og fyrirtæki ríkisins leitað til þeirra ráðgjafa sem eiga aðild að samningum um viðkomandi þjónustu og ýmist keypt þjónustu beint af þeim eða farið í svokallað örútboð innan rammasamnings með einstök stærri verkefni.
Með rammasamningum er útboðsskylda uppfyllt, jafnt innanlands sem á Evrópska efnahagssvæðinu EES.
Einnig má lesa um þessi útboð í Morgunblaðinu sem birtir útdrátt úr viðtali við Júlíus S. Ólafsson í dag í tengslum við aðkeypta ráðgjöf fyrrverandi heilbrigðisráðherra.

