Fréttalisti
Fræðsluröð Ríkiskaupa 2009
Hvernig notum við rammasamninga?
Ríkiskaup kappkosta að halda reglulega fræðslu- og kynningarfundi um hagnýt málefni á sviði opinberra innkaupa.
Þá bjóðum við einnig upp á starfstengd námskeið þar sem farið er yfir framkvæmd útboða, lög og reglur um opinber innkaup ásamt greiningu og skipulagi innkaupa.
Langtímamarkmið er að til verði réttindanám fyrir innkaupafólk á borð við það sem boðið er uppá t.d. í Bretlandi. Enn er þó langt í land að það markmið verði að veruleika hér á landi.
Þangað til gegna Ríkiskaup því hlutverki að fræða og upplýsa innkaupafólk, sem sér um dagleg innkaup á rekstrar- og neysluvörum í stofnunum og fyrirtækjum hins opinbera, um hvernig hægt er að ná fram sparnaði og hagræðingu með notkun rammasamninga.
Kynntu þér fræðsluröðina 2009 nánar á vefnum okkar.


