Fréttalisti
Eco Procura 2009
Alþjóðleg ráðstefna um vistvæn innkaup
Alþjóðleg ráðstefna, EcoProcura, um vistvæn innkaup verður haldin á Hilton Nordica Reykjavík dagana 25.-2 7. mars næstkomandi. Heiti ráðstefnunnar er „Climate Neutral Through Procurement”. Athyglinni verður beint að því hvernig vistvæn innkaup geta leitt til minni losunar á gróðurhúsalofttegundum og auðveldað aðlögun að breyttum aðstæðum vegna loftlagsbreytinga.
Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um nýjar leiðir við framleiðslu á vörum og þjónustu til að sporna gegn neikvæðum áhrifum neyslusamfélagsins á umhverfi okkar.
Vonast er til þess að ráðstefnan veki umræðu um vistvæn innkaup hérlendis, hvetji til innleiðingu þeirra og auki framboð á visthæfum vörum og þjónustu. Ráðstefnan mun jafnframt vekja athygli á því ágæta starfi sem unnið er í umhverfismálum hérlendis á vegum sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnanna.
Ríkiskaup vekja athygli á því að skráning er hafin og er hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á heimasíðu EcoProcura 2009 en einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar um ráðstefnuna og dagskrá hennar á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar.
EcoProcura var síðast haldin í Barcelona 2006. Reykjavíkurborg og ICLEI, alþjóðleg samtök sveitarstjórna um sjálfbærni, standa fyrir ráðstefnunni. Samstarfsaðilar eru umhverfisráðuneytið, Ríkiskaup og Samband íslenskra sveitarfélaga

