Fyrirhuguð útboð Ríkiskaupa 2009
Kynningarauglýsing 2009
Kynningarauglýsing með fyrirhuguðum útboðum hjá Ríkiskaupum á árinu 2009 er komin á vef Ríkiskaupa. Auglýsingin verður einnig birt í Morgunblaðinu sunnudaginn 11. janúar.
Ríkiskaup kynna fyrirhuguð útboð rammasamninga á vegum Ríkiskaupa á árinu 2009. Tilgangurinn er m.a. að kynna áhugasömum birgjum og kaupendum þessi áform með góðum fyrirvara. Samningarnir eru almennt við helstu seljendur á viðkomandi markaði en allir áhugasamir birgjar eru hvattir til að kynna sér samningana og útboðin.
Ríkiskaup vekja sérstaka áthygli á fyrirhuguðu útboði rammasamnings um Talsíma- og Internetþjónustu auk almenns gagnaflutnings og háhraðanetsambanda en núverandi samningur við Símann, Vodafone og EJS rennur út á árinu. Almenn ánægja hefur verið um þessa samninga en samningurinn hefur verið að velta um 1 milljarð króna árlega. Með nýju útboði verður markmiðið að ná hagkvæmari verðum, auknu þjónustustigi og einfaldari og gagnsærri viðskiptaupplýsingum milli kaupenda og seljenda.
Allar stofnanir og fyrirtæki ríkisins eru sjálfkrafa aðilar að nýjum rammasamningum og þurfa ekki að sækja um það sérstaklega. Ef hins vegar stofnun eða fyrirtæki telur hag sínum betur borgið utan einhvers tiltekins rammasamnings, getur viðkomandi sagt sig frá rammasamningi með skriflegu erindi til Fjármálaráðuneytis og Ríkiskaupa þar sem færð eru rök fyrir úrsögn úr samningi.
Hægt er að skoða á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is hvaða samningar eru í gildi á hverju tíma og við hvaða birgja. Rammasamningar eru ætíð boðnir út á EES svæðinu, auglýstir hérlendis hver þeirra fyrir sig og öllum gefinn kostur á að bjóða. Hægt er að skrá sig fyrir rafrænni tilkynningu um þessi útboð á heimasíðu Ríkiskaupa.
Forsvarsmönnum sveitarfélaga er bent á nú er hægt að senda inn beiðni um aðild að rammasamningskerfinu rafrænt, beint af vef Ríkiskaupa.

