Fréttalisti
Áhugavert námskeið f. stofnanir ríkisins
Samfélagsábyrgð fyrirtækja
Opni háskólinn og Eþikos bjóða upp á spennandi og hagnýtt námskeið um innleiðingu samfélagsábyrgðar í fyrirtækjum. Námskeiðið er ætlað fulltrúum fyrirtækja, ríkisstofnana og félagasamtaka sem vilja fræðast um árangursríkar aðferðir fyrir fyrirtæki til að byggja upp orðstír, efla langtíma rekstrarsjónarmið og hámarka jákvæð áhrif á umhverfi sitt með því að axla samfélagsábyrgð sína. Námskeiðið byggist í senn á fyrirlestrum, vinnustofum og umræðum. Námskeiðið verður gagnvirkt og munu þátttakendur hafa tækifæri til þess að skoða samfélagsábyrgð út frá ýmsum sjónarhornum t.d. fyrirtækjum sem þeir starfa fyrir eða aðila eins og ríkisstofnana eða félagasamtaka.
Sjá nánar á vef Háskólans í Reykjavík: http://www.ru.is/?pageid=8101

