Fréttalisti
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2008
Innkauparáðstefnan verður á Grand hótel 4. nóvember
Glærur og annað efni frá ráðstefnunni
Margt fróðlegra erinda verður á ráðstefnunni að vanda og má þar nefna helst, erindi Skúla Magnússonar, ritara EFTA dómstólsins Lúxemborg um réttarúrræði og viðurlög vegna brota á lögum um opinber innkaup og erindi Jesper Vesten Drescher hjá Capacent í Danmörku sem ber heitið "Learn from best in class procurement organizations among the Danish municipalities" .
Auk þeirra munu Helgi Bogason frá Reykjavíkurborg og Guðmundur Ragnar Ólafsson frá Hafnarfjarðarbæ fjalla um það helsta sem er á döfinni í innkaupamálum þessara sveitarfélaga.
Að loknum léttum hádegisverði taka málstofurnar við og þær verða fjórar nú eins og í fyrra og eru ráðstefnugestir hvattir til virkrar þátttöku.
Á fyrstu málstofunni mun Stefán Einar Stefánsson hjá Eþikos velta upp ákveðnum siðfræðivangaveltum: "Í umboði almennings - Staða ríkisstofnana gagnvart hinum frjálsa markaði". Þessu næst verður málstofa þar sem aðilar frá SVÞ og FÍS fjalla um hugsanlegan vöruskort sem íslensk fyrirtæki og stofnanir gætu nú staðið frammi fyrir og Ríkiskaup munu fjalla um verðbreytingar í rammasamningum.
Síðustu tvær málstofurnar fjalla síðan um um kaup á ráðgjöf og þjónustu annars vegar og örútboð innan rammasamninga hins vegar.
Ríkiskaupa hvetja alla sem láta opinber innkaup sig einhverju varða til að mæta á ráðstefnuna og leggja þannig sitt af mörkum til að byggja upp þennan mikilvæga málaflokk.
Ráðstefnugjald er kr. 10.000.



