Velheppnaður kynningarfundur
Hvernig notum við rammasamninga? - Rekstur bifreiða og fasteigna
Glærur frá síðasta kynningarfundi í fræðsluröð Ríkiskaupa um rekstur bifreiða og fasteigna eru komnar á vefinn.
Fundurinn var vel sóttur í ljósi atburða liðinna vikna. Á fundinum voru kynntir nokkrir helstu rammasamningar Ríkiskaupa sem falla undir rekstur á bifreiðum og fasteignum. Má þar nefna nýjan byggingavörusamning, auk samninga um raftæki, hreinlætisvörur, eldsneyti og bílaleigu svo eitthvað sé nefnt.
Þá kynnti Birgir Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum og ritari Bílanefndar ríkisins starfsemi nefndarinnar og spunnust miklar umræður um það efni.
Landvernd kynnti vistaksturverkefni sitt mætti með tvo akstursherma. Menn stóðu sig vel í vistakstrinum og var Guðmundur Pétur Yngvason hjá Jóhann Ólafsson & co. þar fremstur í flokki og eyddi aðeins 4,74 l á hundraðið. Í öðru sæti var Hafsteinn Sævarsson hjá A. Karlsson og eyddi hann 4,78 l á hundraðið. Þess má geta að Geir Haarde vann keppni í vistakstri á Hótel Hilton um daginn og eyddi hann 5,67 l/100 km.
Innkauparáðstefna Ríkiskaupa verður síðan haldin þann 4. nóvember nk. Dagskráin eins og hún lítur út í dag er komin á vef Ríkiskaupa í viðburðadagatalinu.
Nánari kynning á ráðstefnunni og skráning hefst eftir helgina.
