Fréttalisti

skrifstofan6_kaup

Hvernig notum við rammasamninga?

Glærur frá síðasta kynningarfundi komnar á vefinn

24.9.2008

Fyrsti fræðslufundur haustsins í Fræðsluröð Ríkiskaupa - Hvernig notum við rammasamninga? er að baki og var almenn ánægja meðal þátttakenda með fundinn.

Fjölmörg fræðandi erindi og sýningarsvæði seljenda vöktu lukku hjá kaupendum.

Glærur frá fundinum eru nú komnar á vefinn og eru að finna undir fræðsluhlutanum.

Næsti fundur í fræðsluröðinni verður á Grand hótel, þann 20. október nk. og þar verður umfjöllunarefnið þeir rammasamningar Ríkiskaupa sem falla undir rekstur bifreiða og fasteigna.

Þar verða m.a. kynntir nýgerðir rammasamningar um byggingavörur, ljósaperur, raftæki og plastvörur. Þá er gert ráð fyrir að farið verði í atriði eins og eldsneytiskaup og sorphirðuþjónustu og það sem er að gerst í þessum málaflokkum á næstu misserum.

Á næstu dögum verður sett inn nánari dagskrá og upplýsingar um þennan viðburð í viðburðadagatalið á vef Ríkiskaupa.

Árleg Innkauparáðstefna Ríkiskaupa verður síðan haldin þann 4. nóvember nk. og eru allir hvattir til að taka daginn frá.

 

 

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.