Nýr rammasamningur um upplýsingatækni
Samið við 6 aðila
Ríkiskaup hafa gert rammasamninga um tölvubúnað f. ríkið frá árinu 2000 en nýr rammasamningur um upplýsingatækni sem undirritaður var á dögunum er sá umfangsmesti til þessa.
Samið var við EJS, Nýherja, Opin kerfi, Pennann, Sensa og Þekkingu.
Samningurinn nær m.a. yfir tölvubúnað og jaðartæki s.s. prentara og skjái, netbúnað og netþjónustu, rekstrar- og hýsingarþjónustu ásamt almennri rekstrarvöru.
Sjá má nánar um skiptingu samningsins niður á flokka og birgja í töflunni hér fyrir neðan.
Aðild að þessum samningum sem og öðrum rammasamningum Ríkiskaupa tryggir opinberum aðilum mun hagstæðari innkaup á vörum og þjónustu en gengur og gerist á almennum markaði, óháð stærð og umfangi.
|
UT rammasamningurinn verður kynntur á fyrsta fræðslufundi haustsins í Fræðsluröð Ríkiskaupa - Hvernig notum við rammasamninga? sem verður á Grand hótel þann 18. september nk. Fundurinn ber yfirskriftina "Skrifstofan og skólinn" og auk UT samningsins verða kynntir rammasamningar um fjarskipti sem nýlega voru endurnýjaðir til eins árs. Einnig munu birgjar í nokkrum öðrum rammasamningum s.s um skrifstofuvörur og pappír, prentun, skrifstofutæki ásamt skrifstofu- og skólahúsgögn verða á staðnum til að kynna sína vöru og þjónustu. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins er að finna í viðburðadagatalinu á vef Ríkiskaupa. |

