Ríkiskaup

Fréttalisti

Fréttalisti
  • ArniMag

Niðurstöður úr hönnunarsamkeppni um Stofnun Árna Magnússonar

Fyrstu verðlaun hlutu Hornsteinar Arkitektar ehf.

28.8.2008

Nú liggja fyrir niðurstöður úr hönnunarsamkeppni um Stofnun Árna Magnússonar.

Úrslit voru kunngerð fimmtudaginn 21. ágúst 2008 við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands að viðstöddu fjölmenni.

Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður dómnefndar, kynnti niðurstöður og þakkaði öllu þátttakendum, dómnefndarmönnum og öðrum þeim sem komu að vinnu við samkeppnina á einn eða annan hátt.

Ávörp voru flutt af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, Kristínu Ingólfsdóttur rektor Háskóla Íslands og Vésteini Ólafssyni forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar.

Alls bárust 19 tillögur og voru verðlaun sem hér segir:

  1. verðlaun - Hornsteinar arkitektar ehf
  2. verðlaun - PK arkitektar ehf og
  3. verðlaun - VA arkitektar ehf.

Þá voru þrjár tillögur til viðbótar keyptar. Nánari upplýsingar um niðurstöðu dómnefndar og útfærslu tillagna má sjá á vef Framkvæmdasýslu ríkisins; www.fsr.is

Ríkiskaup þakka öllum sem að samkeppni þessari komu fyrir gott samstarf.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica