Fréttalisti
Kolefnisjöfnun bílaflota ríkisins
Munum að merkja bílana
Ríkiskaup hafa unnið að samningi milli Kolviðar og forsætisráðuneytis um kolefnisjöfnun bílaflota ríkisins sem nú er í höfn.
Samningurinn kveður á um það að íslenska ríkið kolefnisjafni eldsneytiskaup ríkisins vegna vélknúinna ökutækja. Þannig mun Kolviður reikna út koldíoxíðlosun eldsneytisins og gróðursetja samsvarandi magn trjáa sem þarf til að jafna þá losun.
Samningurinn er gerður á grundvelli mats sem Ríkiskaup unnu um heildarlosun koldíoxíðs ökutækja í eigu ríkisins. Áætlað er að losunin nemi um 9000 tonnum af CO2 á þessu ári og til að binda samsvarandi magn kolefnis mun Kolviður gróðursetja um 84 þúsund plöntur á Geitasandi á Rangárvöllum.
Sjá nánar í fréttatilkynningu á vef Kolviðar, www.kolvidur.is
Þess má einnig geta að útbúnir hafa verið sérstakir límmiðar til þess að merkja þessi kolefnisjöfnuðu ökutæki og eru stofnanir og fyrirtæki ríkisins hvött til að nálgast þessar merkingar hjá Ríkiskaupum. Hægt er að sækja merkingarnar í afgreiðslu Ríkiskaupa Borgartúni 7c, frá og með morgundeginum en einnig er hægt að senda tölvupóst til rikiskaup@rikiskaup.is og fá þær sendar. Taka þarf fram nafn stofnunar, fjölda merkinga og hvert á að senda.

