Fréttalisti
Morgunverðarfundur um val á ráðgjöf
Hörð skoðanaskipti um aðferðir og val
Um 120 manns sátu morgunverðarfund Ríkiskaupa um val á ráðgjöf á Grand hótel.
Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins í Luxemborg, flutti fyrsta erindið um "Hæfiskröfur og forsendur fyrir vali tilboðs" þar sem hann fór yfir sínar hugleiðingar um hvernig standa beri að innkaupum á persónubundinni þjónustu.
Næstur var Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, með sitt erindi um "Val á ráðgjöfum - Hvaða aðferð er best ?" þar sem hann stiklaði á helstu kostum og göllum aðferða við val frá sjónarhóli opinbers verkkaupa.
Þriðja og síðasta erindið flutti Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri mannvirkjaskrifstofu Reykjavíkurborgar þar hann fjallaði um "Val á hönnuðum hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar" .
Erindum allra þriggja fyrirlesara var vel tekið og spunnust snarpar umræður í lokin um túlkun og skilning fyrirlesara og verkbjóðenda á því hvernig atriðum eins og verði, gæðum og hæfi bjóðenda er spyrt saman við val á ráðgjöf og hönnun.
Glærur frá erindum allra þriggja fyrirlesara.

