Fréttalisti
Nýr samningur um lögboðnar ökutækjatryggingar
Gengið til samninga við Tryggingamiðstöðina
Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa á lögboðnum ökutækjatryggingum f. ríkið hefur verið samið við Tryggingamiðstöðina (TM). Fjögur tilboð bárust og reyndist TM með hagstæðasta tilboðið.
Sigurður Viðarsson forstjóri TM og Júlíus S. Ólafsson forstjóri Ríkiskaupa undirrituðu samninginn. Hann er til tveggja ára og gildir frá 1. maí 2008 til 30. apríl 2010 með möguleika á framlengingu í allt að tvö ár til viðbótar. Í samningnum felst jafnframt skuldbinding af hálfu TM og einstakra ríkisstofnana um náið samstarf á sviði forvarna.
