Fréttalisti

16april

Opnun Vörusjár

Netverslun í sókn

16.4.2008

Fræðsluröð Ríkiskaupa, Hvernig notum við rammasamninga heldur áfram.

Ríkiskaup héldu fjölmennan kynningarfund á Grand hótel, Sigtúni, miðvikudaginn 16. apríl þar sem áherslan var á innkaupaleiðir og rafræn viðskipti.

Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir, forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs Ríkiskaupa, fjallaði um þær innkaupaleiðir sem innkaupafólki standa til boða og hvernig þær vinna saman.

Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Grófargils fjallaði um hönnun, gerð og viðhald vöruupplýsinga í miðlægum gagnagrunnum.

Opnun Vörusjár

Jónas Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Vörusjá ehf. kynnti Vörusjána og Daníel Tryggvi Daníelsson, verkefnastjóri hjá Vörusjá sýndi viðstöddum innkaupavefinn og virkni hans.

Vörusjáin sem nú er komin í loftið mun fyrst um sinn þjóna opinberum kaupendum og gera þeim kleift að kaupa og nálgast ítarupplýsingar um vörur í rammasamningum Ríkiskaupa.

Í framhaldinu stendur til að útvíkka vöruúrvalið hjá rammasamningsbirgjum auk þess sem aðrir birgjar og þjónustuaðilar munu smám saman geta nýtt sér þessa nýju leið til að koma sinni vöru og þjónustu á framfæri, þegar Vörusjáin kemst í almenna notkun.

Mikil vinna er framundan við að tengja birgja og kaupendur við innkaupavefinn og eru áhugasamir aðilar hvattir til að setja sig í samband við Vörusjá til að fylgja þeim málum eftir.

Næsti fundur í fræðsluröðinni, Hvernig notum við rammasamninga, verður á Grand hótel þann 28. maí nk. og þar verður fjallað m.a. um val á ráðgjöf og það sem því tengist.



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.