Fréttalisti
Hvernig notum við rammasamninga?
Fjölsóttur kynningarfundur á Grand Hótel 18. mars.
Ríkiskaup þakka þeim fjölmörgu viðskiptavinum sínum sem sóttu kynningarfund um notkun rammasamninga þar sem m.a. var fjallað um tölvu- og hugbúnaðarsamninginn ásamt rammasamning um fjarskiptaþjónustu.
Margt fróðlegt og gagnlegt kom fram á fundinum og má nálgast glærur frá erindunum á fræðsluvef Ríkiskaupa.
Ríkiskaup hvetja kaupendur til að skoða vel kaup sín á þessari þjónustu og miðla sinni reynslu áfram til að aðrir kaupendur geti notið góðs af.
