Fréttalisti

innkaup_eru_fag

Fyrirhuguð rammasamningsútboð 2008

Kynningarauglýsing

11.3.2008

Ríkiskaup kynna fyrirhuguð útboð rammasamninga á vegum Ríkiskaupa á árinu 2008 auk sértækra útboða fyrir LSH á árinu. Tilgangurinn er m.a. að kynna áhugasömum birgjum og kaupendum þessi áform með góðum fyrirvara.

Kynningarauglýsing 2008

Allir áhugasamir birgjar eru hvattir til að kynna sér samningana og fyrirhuguð útboð.

Hægt er að skoða á vef Ríkiskaupa hvaða samningar eru í gildi á hverjum tíma og við hvaða birgja. Rammasamningar eru ætíð boðnir út á EES svæðinu, auglýstir hérlendis hver fyrir sig og öllum því gefinn kostur á að bjóða. Hægt er að skrá sig á póstlista fyrir rafrænni tilkynningu þegar þessi útboð eru auglýst á heimasíðu Ríkiskaupa.

Forsvarsmönnum sveitarfélaga er bent sérstaklega á að kynna sér þau rammasamningsútboð sem fyrirhuguð eru á árinu 2008, þar sem sveitarfélögin þurfa árlega að tilkynna skriflega þátttöku í rammasamningum til Ríkiskaupa áður en til útboðs kemur. Umboð sveitarfélaganna til Ríkiskaupa um þátttöku í rammasamningum 2008 er að finna á vef Ríkiskaupa og er hægt að senda það útfyllt í faxnúmer 530 1414.

 

 

 



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.