Fréttalisti
Handbók um opinber innkaup komin í sölu hjá Ríkiskaupum
Metaðsókn á kynningarfund um handbókina sl. miðvikudag
Um 140 manns sóttu morgunverðarfund Ríkiskaupa og fjármálaráðuneytis í tilefni af útkomu nýrrar handbókar um opinber innkaup 2008.
Júlíus S. Ólafsson ávarpaði fundarmenn og því næst hélt Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins í Luxemborg og aðalhöfundur lagafrumvarps um opinber innkaup erindi um helstu breytingar og nýmæli í nýju lögunum.
Síðastur á mælendaskrá var Jóhannes Karl Sveinsson, hrl. með erindi um hvað gerist ef reglur um opinber innkaup eru brotnar og afleiðingar réttarbrota.
Glærur frá fyrirlestri Skúla Magnússonar.
Glærur frá fyrirlestri Jóhannesar Karls Sveinssonar.
Handbókin er nú komin í sölu hjá Ríkiskaupum og kostar 2.300 kr.
Þeir sem vilja panta bókina geta sent póst á Ástþór Óskarsson hjá Ríkiskaupum: astthor@rikiskaup.is

