Ný handbók um opinber innkaup 2008
Handbókin kemur út í vikunni
Í tilefni af útgáfu nýrrar handbókar um opinber innkaup bjóða Ríkiskaup og Fjármálaráðuneytið til morgunverðarfundar á Grand hótel, miðvikud. 20. febrúar nk. frá kl. 8.10 – 10.00
Á fundinum verða kynnt helstu atriði nýrra laga um opinber innkaup nr. 84/2007.
8:10 – 8:30 Móttaka og morgunverður
Dagskrá:
8:30 – Fundur settur
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa
Ný lög um opinber innkaup – helstu breytingar og nýmæli
- Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins í Luxemborg og aðalhöfundur lagafrumvarpsins
Hvað gerist ef reglur um opinber innkaup eru brotnar og afleiðingar réttarbrota
- Jóhannes Karl Sveinsson, hrl.
Fundarstjóri er Guðmundur I. Guðmundsson, yfirlögfræðingur Ríkiskaupa
Handbókin verður seld á fundinum á sérstöku kynningarverði kr. 2.000,-
Aðgangur er ókeypis
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í netfangið skraning@rikiskaup.is
